154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

Fjarskipti í dreifbýli.

[11:41]
Horfa

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, fyrir hennar innlegg í þessa umræðu og hv. þingmönnum fyrir að hafa tekið þátt í þessari mikilvægu umræðu. Það hafa komið margar góðar athugasemdir varðandi stöðu fjarskiptamála í dreifbýli. Um allt land er fólk sem á í sambandserfiðleikum og það er ljóst að ríkið þarf ekki að vera ástæðan fyrir því. Þess vegna er mjög mikilvægt að við hér gerum allt til þess að bæta fjarskiptasamband um allt land. Því fagna ég því sem kom fram í máli hæstv. ráðherra, að ætlunin sé að ráðast í átak til að koma heimilum og fyrirtækjum inn á tækniöldina og ég mun fylgjast mjög vel með þessu átaki. Ég vona að þetta sé bara eitt stórt skref í nauðsynlegri vegferð því að kröfurnar munu bara aukast. Tæknin er að verða stærri og stærri hluti af lífi okkar. Við höfum verið að samþykkja frumvörp hér sem varða það að bæta tæknina og bæta þau tæki sem við höfum til daglegs lífs, ég vil bara nefna hér frumvarp sem við samþykktum um fjarheilbrigðisþjónustu.

Ég hef líka áhyggjur af því sem kom fram í máli hv. þm. Eyjólfs Ármannssonar, að dráttarvélin hans hafi horfið, en það er nú annað mál.

Það hafa komið fram mjög margar góðar athugasemdir hér í dag og ég vil þakka hv. þingmönnum fyrir þessa góðu umræðu. Það er mjög gott að finna að það sé mikill vilji til þess hér á þingi að bæta fjarskiptasamband um allt land því það skiptir fólk gríðarlega miklu máli að geta verið í fjarskiptasambandi heima hjá sér og það skiptir máli að geta náð sambandi þegar eitthvað kemur upp á við aksturinn eða uppi á heiðinni. Þetta er mikilvægt öryggismál á sama tíma og það styður við hinar dreifðari byggðir.