Fjarskipti í dreifbýli.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum fyrir þessa góðu umræðu. Hún ber með sér metnað fyrir land og þjóð í landi sem er eitt tengdasta land í heimi, en við ætlum samt ekki að láta staðar numið og gera áfram betur. Hér er farið inn á marga þætti, rætt um göt á stofnvegum og það er eins og sumir hv. þingmenn hafi ekki alveg heyrt að uppbyggingin byggir á kvöð vegna tíðniheimilda sem er fjarskiptafyrirtækja að fjármagna. Það er búið að ná sátt um fyrirkomulag og það verkefni er í framkvæmd að klára öll göt á stofnvegum landsins í lok árs 2026. Mikil framför, mikilvæg þróun og mjög hröð uppbygging þar.
Síðan er ný reglugerð um öryggi fjarskiptaneta og fjarskiptaþjónustu að koma í samráðsgátt og ég er að leggja lokahönd á og þar eru gerðar auknar kröfur um aukið varaafl t.d. á mikilvægum fjarskiptastöðum. Þá hafa stjórnvöld og fjarskiptafyrirtæki í kjölfar hamfaraveðurs t.d. bætt áfallaþol fjarskipta og bætt varaafl en þar má gera betur og þessi reglugerð kemur brátt í samráðsgátt.
Síðan er það auðvitað bara stóra myndin um uppbygginguna og áframhaldandi uppbyggingu og hver aðkoma ríkisins er, hvenær við eigum að stíga inn í og hvenær við þurfum að ýta undir að markaðsaðilarnir fari í uppbyggingu. Við erum með mjög skýra árangursmælikvarða. Við ætlum okkur t.d. að 80% lögheimila eigi kost á ljósleiðarasambandi í öllum þéttbýlis- og byggðakjörnum árið 2028. Við erum búin að vera að undirbúa næstu innkomu okkar með fjarskiptasjóð og hvernig við nýtum stuðning ríkisins þar sem markaðsaðilar hafa ekki áform. Það hefur margt verið að gerast. Það er búið að ráðstafa tveimur ljósleiðaraþráðum NATO. Við erum að sjá breytingar á eignarhaldi fyrirtækja og sölu á stórum fjarskiptaeignum milli fjarskiptafyrirtækja og höfum núna fengið uppbyggingaráformin til að meta stöðuna og kynna næstu áform og útspil okkar til að klára ljósleiðaravæðinguna. Þannig að ég hlakka til þess og hlakka til að vinna áfram með þingheimi að þessum verkefnum sem eru mikilvæg fyrir íslenskt samfélag og þá stafrænu þróun og öryggi sem við ætlum að tryggja.