útlendingar.
Virðulegur forseti. Við greiðum hér atkvæði um mikilvægar og góðar breytingar á útlendingalöggjöfinni. Stóra málið hér er að samræma löggjöfina okkar við það sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum. Stærsti og mikilvægasti þátturinn í þessum breytingum snýr að því að fólk sem fengið hefur vernd í öðru Evrópuríki geti ekki komið til Íslands og líka fengið málsmeðferð á Íslandi. Aðrir þættir í þessu frumvarpi lúta að því að nálgast hin Norðurlöndin í nálgun þeirra, m.a. við lengd dvalartíma svo og varðandi fjölskyldusameiningar. Þetta er mikilvægt skref sem við tökum hér í að aðlaga okkar löggjöf að því sem þekkist á hinum Norðurlöndunum, enda er Ísland velferðarsamfélag eins og hin Norðurlöndin og það er eðlilegt að við horfum líka til hinna Norðurlandanna þegar kemur að löggjöf um þennan viðkvæma og mikilvæga málaflokk.