154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:03]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég skil ekki hvernig það getur talist góð hugmynd eða bara hugmynd, í heimi þar sem við vitum að einangrun og einmanaleiki fólks er að verða sjálfstætt vandamál, að lengja þann tíma sem fólk er fjarri fjölskyldum sínum. Í dag tekur það oft mjög langan tíma fyrir fólk að sameinast fjölskyldum sínum og með því að lengja þann tíma að einungis sé hægt að sækja um fjölskyldusameiningu eftir tvö ár er verið að lengja aðskilnað fjölskyldna umtalsvert. Það að vera ekki með ástvinum sínum og verða einangraður getur haft mjög slæm áhrif á heilsu fólks, bæði geðheilsu og líkamlega heilsu. Það sem þessi grein gæti þá haft í för með sér er meira álag á heilbrigðiskerfið okkar. Helstu hætturnar sem fylgja því að vera einangraður og einmana eru hjartasjúkdómar, sykursýki 2, þunglyndi, kvíði, neysla, ýmsir minni sjúkdómar og lífslíkur styttast.

Forseti. Við eigum að sameina fjölskyldur og styðja við inngildingu einstaklinga í samfélagið, ekki vinna í því að gera fólk einmana eða einangrað. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)