154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:04]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við erum að fara að greiða hér atkvæði um mikilvægt mál í samfélaginu sem lýtur að því að reyna að samræma reglur um móttöku hælisleitenda við það sem gerist annars staðar á Norðurlöndunum. Ísland hefur haft furðulegar sérreglur undanfarin ár, eða frá árinu 2016, sem hefur leitt til stórkostlegrar fjölgunar hælisumsókna í landinu. Við tökum hlutfallslega við margfalt fleiri umsóknum en önnur Norðurlönd. Af hverju eigum við að gera það, einangruð eyja hér uppi í Norður-Atlantshafi? Af hverju ættum við að gera það? Af hverju eigum við að vera með sérreglur? Við eigum að reyna að hafa samræmdar reglur við önnur ríki og það er það sem önnur ríki eru leitast við að gera. Það segir í samningnum um réttarstöðu flóttamanna, með leyfi forseta:

„[Sameinuðu þjóðirnar] álíta að það geti lagt óhæfilega þungar byrðar á einstök lönd að veita mönnum griðland og að viðunandi lausn vandamáls, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa viðurkennt að sé alþjóðlegt að eðli og umfangi, fáist því ekki án samvinnu þjóða [á] milli …“

Samábyrgð er grundvallaratriði. Ábyrgð Íslands — við höfum (Forseti hringir.) verið að taka miklu meiri byrðar en önnur ríki. Ég hafna því algjörlega að hér sé um popúlisma að ræða eða útlendingaandúð hjá þeim (Forseti hringir.) sem vilji fækka umsóknum. Það er það ekki. Og varðandi (Forseti hringir.) pólun og skautun í landinu þá ætti fólk að kynna sér sögu kalda stríðsins á Íslandi. Það er engin skautun (Forseti hringir.) í þessu máli og það er enginn popúlismi eða útlendingaandúð að vilja fækka umsóknum.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími er aðeins ein mínúta í umræðum um atkvæðagreiðslu.)