154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:06]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við í Samfylkingunni viljum vissulega styðja við umbætur í þessum mikilvæga málaflokki en þessar umbætur verða þá að þjóna þeim meginmarkmiðum sem sett eru fram í frumvarpinu um mannúð og skilvirkni og að verið sé að sækja sér erlendar farsælar fyrirmyndir. Í þessu frumvarpi sem við greiðum atkvæði um hér í dag eru vissulega greinar sem ná að þjóna þessu markmiði. Við bindum vonir við það að umbætur á kærunefnd útlendingamála nái að auka málshraða sem hefur svo sannarlega verið til trafala. Við leggjum hins vegar líka til okkar umbætur á málinu. Við leggjum til að afnuminn verði tveggja ára biðtími varðandi viðbótarverndarhafafjölskyldusameiningu sem og að meginreglan verði vissulega sú að þeir sem þegar hafa fengið vernd annars staðar í Evrópu fái hér ekki efnismeðferð en að áfram verði heimilt að taka tillit til sérstakra tengsla þeirra sem rétt eiga á því að sækja hér um vernd sem ekki hafa fengið slíka erlendis. Við látum ekki okkar eftir liggja í þessum mjög svo mikilvæga málaflokki en viljum biðla til þingheims að virða það að erlendar fyrirmyndir hafa ekki alltaf reynst vel og skilvirkni þarf að þjóna öllu, líka mannúð.