útlendingar.
Virðulegi forseti. Við erum hér að fara að greiða atkvæði um mjög mikilvægt frumvarp í málaflokki sem hefur reynst mjög knýjandi í íslensku samfélagi núna síðustu misserin. Það er alveg ljóst, eins og hér hefur margoft komið fram, að ríkisstjórnin er búin að sammælast um heildarstefnu í málaflokknum þar sem við ætlum að taka betur utan um hann. Og jú, við ætlum að leita fyrirmynda og samræma okkar verklag og stefnu við það sem gerist í löndunum í kringum okkur og þá erum við sérstaklega að horfa til Norðurlandanna og ég tel að við séum að stíga hér mjög gott skref einmitt að vinna af festu, að ná skilvirkni en með mannúð að leiðarljósi.
Ég vil nota tækifærið og fá að þakka hv. allsherjar- og menntamálanefnd fyrir sína vinnu sem hefur verið með eindæmum góð og ég vonast eftir því að þingheimur muni samþykkja þetta frumvarp.