154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:10]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við í Viðreisn höfum lagt áherslu á samhljóm og ekki síður samvinnu í þessum viðkvæma málaflokki, þvert á flokka. Við höfum undirstrikað mikilvægi þess að við sameinumst um skynsamlega, mannúðlega en líka raunsæja löggjöf. Við þurfum öll að sýna ábyrgð í þessum efnum. Við þurfum að koma í veg fyrir skautun í samfélaginu. Rammarnir þurfa líka að vera skýrir þegar kemur að þessum málum og ekki síst þurfa þeir að þola ríkisstjórnar- og ráðherraskipti þannig að hér verði ekki hentistefna við framkvæmd útlendingastefnu. Við þurfum að tryggja skilvirkni og mannúð og ég tel að það sé margt í þessu frumvarpi sem hægt er að skilja og styðja en annað sem hefði átt að vinna betur með til að ná markmiðum einmitt um skilvirkni og mannúð.