útlendingar.
Herra forseti. Hér fyrir réttu ári komu stjórnarliðar í gegn stærra útlendingafrumvarpi sem Vinstri græn börðu sér dálítið á brjóst fyrir að hafa gert betra en hafði verið í fyrri útgáfum. Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sagði að breytingar sem fyrst og fremst hefðu orðið fyrir tilstilli VG væru stærstar tvær; annars vegar sú að meginreglan um heimild til að taka mál til efnismeðferðar þó svo að viðkomandi væri með vernd í öðru landi stæði óhögguð. Hins vegar ákvæði um sérstök tengsl við Ísland eða sérstakar aðstæður.
Hér í ræðu rétt áðan fagnaði forsætisráðherra því að fyrra ákvæðið af þessum tveimur væri í þessu frumvarpi hérna, löngu tímabær breyting, sagði hún, sem VG fagnaði að hafa haldið úti fyrir ári. Og hin breytingin er líka í þessu frumvarpi. Þannig að öll skaðaminnkunin sem Vinstri græn börðu sér á brjóst fyrir í fyrra var ekki til mikils. Ógeðslegu ákvæðin sem þau montuðu sig af að hafa náð út í fyrra — þau ætla að samþykkja þau hér í dag. Takk fyrir, bless. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)