154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:20]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Eftir sem áður óttast ég að þetta sé einfaldlega ekki alveg úthugsað af hálfu ráðuneytisins og meiri hlutans ef það er ætlunin að auka skilvirkni í kerfinu hérna, að minnka kostnað. Kostnaður ríkissjóðs við það að reyna að halda fólki frá landinu og koma því í burtu hleypur á tugum milljarða. Er þetta í lagi? Ég held við séum öll sammála um markmiðin. Við erum sammála um markmiðin. Þau eru: Hröð málsmeðferð, skilvirkni í málaflokknum, minni kostnaður, aukin mannúð, inngilding. Ekkert í þessu frumvarpi vinnur í þá átt. Ég held þetta sé einfaldlega ekki alveg úthugsað hjá hv. þingmönnum meiri hlutans og því síður hjá hæstv. ráðherra. Því legg ég til að þau taki þetta frumvarp aftur og krumpi það og hendi því ruslið og prófi eitthvað nýtt.