útlendingar.
Aftur langar mig til að vísa til umsagnar Lögmannafélags Íslands og reyndar fleiri aðila. Lögmannafélagið bendir sérstaklega á að það sé verið að veita kærunefnd útlendingamála gríðarlega víðtækar heimildir, að fela einum kærunefndarmanni að úrskurða í málum. Þetta er mjög óvenjulegt í stjórnsýslunni og ef þetta snýst bara um að tryggja skilvirkni og ekki skerða réttarvernd, hvers vegna er það þá ekki bara alls staðar þannig í stjórnsýslunni að það sé bara einhver einn, það er bara einhver kærudómari, ekki kærunefnd? Við erum með fjölskipaðar kærunefndir í stjórnsýslunni almennt. Það er til þess að tryggja réttaröryggi. Þetta skerðir réttaröryggi.