útlendingar.
Hvers vegna er ég að koma hérna upp aftur og aftur? Það er ekki síst til að reyna það sama og reynt var með lög sem við samþykktum hér í fyrra og kom mörgum á óvart hvernig fóru þó að við hefðum einmitt reynt okkar allra besta að gerir fólki grein fyrir hvað það væri að samþykkja. Ég ætla að lesa hérna aðeins upp, með leyfi forseta:
„Fullskipaðri nefnd er einnig heimilt að fela einum nefndarmanni að úrskurða í öðrum tegundum mála þar sem nefndin telur að framkvæmd og fordæmi séu svo skýr að ekki sé nauðsynlegt að afgreiða slík mál skv. 1. mgr.“
Þetta er gríðarlega opin heimild til að fela einum nefndarmanni og nefndinni sjálfri er falið að ákveða það. Mál í þessum málaflokki eru ótrúlega einstaklingsbundin og þau eru matskennd. Það er ofboðslega hættuleg vegferð að fara þangað. Og aftur: Þetta skerðir réttaröryggi.