154. löggjafarþing — 114. fundur, 17. maí 2024.
útlendingar.
722. mál
Hér er verið að víkka út heimildir kærunefndar útlendingamála til að bjóða kærendum að koma fyrir nefndina. Nú þekki ég það sjálf úr framkvæmd að þetta hefur stundum verið vont, sú heimild var takmörkuð við ákveðna tegund mála. Ég tel til bóta að það sé í höndum kærunefndarinnar að boða til sín kæranda ef hún telur tilefni til. — Ég segi já.