154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:31]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Þetta litla ákvæði er liður í afnámi 12 mánaða frests sem kom inn með lögunum 2016 þar sem stjórnvöldum var gert að afgreiða mál þar sem hægt er að senda fólk til annars Evrópuríkis, fyrst og fremst, innan 12 mánaða. Hvað gerist eftir 12 mánuðina ef tafir eru ekki á ábyrgð umsækjenda? Nota bene, það kom mjög skýrt fram í lögunum. Þá fær umsóknin efnismeðferð. Hér hafa ýmsir hv. þingmenn komið á óvart og haldið því fram að þetta ákvæði hafi reynst illa í framkvæmd. Það hefur eingöngu reynst illa í framkvæmd vegna þess að Útlendingastofnun virðist líta svo á að þegar einhver einstaklingur fær efnismeðferð á umsókn sinni eftir þessa 12 mánuði þá hafi stofnunin tapað. Auðvitað á henni að vera alveg sama um það. Þetta snýst bara um skilvirkni. Það er ástæðan fyrir því að það er verið að afnema þessa reglu. Ástæðan fyrir tregðunni á framkvæmd á þessu er sú að stjórnvöld hafa lagt sig í líma við að reyna að láta fólk (Forseti hringir.) bera ábyrgð á töfum sem ber enga ábyrgð á. Þessu ákvæði var ætlað að tryggja skilvirkni í þessum málum þar sem fólk beið oft hérna árum saman á Íslandi án (Forseti hringir.) þess að fá einu sinni svar við því hvort að það fengi umsóknina sína skoðaða. Og nú erum við fara aftur þangað. Til hamingju. Teljið þið þetta vera að auka skilvirkni? Sjáum til.