útlendingar.
Virðulegi forseti. Hér er um breytingartillögu að ræða og er ákvæðið sambærilegt því sem var í samráðsgátt stjórnvalda og alveg furðulegt að það skyldi vera tekið út. Hvað felst í því? Jú, að Útlendingastofnun skuli að jafnaði afgreiða mál án þess að talsmaður sé skipaður. Hvenær skal það gert? Jú, þegar fyrirsjáanlegt er að umsækjandi fái veitta vernd eða umsókn verði synjað. Til hvers þarf að skipa talsmann þegar fyrirsjáanlegt er að umsókn verði samþykkt eða hafnað? Þetta kostar ríkið stórkostlegar fjárhæðir og líka annað: Þetta kemur ekki niður á réttarvernd. Ef eitthvað er fyrirsjáanlegt þá á stjórnsýslan ekki að flækja málið á nokkurn hátt, svo það liggi fyrir. Það er sama regla og er í Skandinavíuríkjunum. Þetta kemur ekki niður á réttaröryggi þar, að hafa þetta ekki, og myndi ekki gera það hér heldur.Og spurningin er: Hvaða sérhagsmunir voru að baki því að þetta var tekið út? Þessar milljónir sem streyma til talsmannanna — íslenska ríkið hefði getað sparað það fé og staðið í lappirnar.