útlendingar.
Virðulegur forseti. Við í Samfylkingunni leggjum áherslu á að þó að við styðjum það að hér séu felld brott ákvæði sem lúta að hámarksmálsmeðferðartíma varðandi 12 mánaða regluna svokölluðu og leggjum það til umræðunnar að við erum samþykk þrengingu á 2. mgr. 36. gr. hvað varðar það að að meginstefnu til eigi ekki að taka til efnismeðferðar mál hjá þeim einstaklingum sem hafa þegar fengið vernd í öðru ríki þá viljum við hins vegar ítreka gildi þess að geta tekið þau mál sem eru svokölluð Dyflinnarmál, þar sem fólk er að bíða eftir niðurstöðu um vernd í öðru ríki þar sem hægt væri að taka tillit til sérstakra tengsla við Ísland. Þetta er norska leiðin. Við teljum að þarna séum við einfaldlega að leita erlendra fyrirmynda sem hafa reynst mjög vel í framkvæmd. Ég legg hins vegar bara áherslu á það að mér finnst ekki góður bragur á því að við séum að tala hér um stjórnsýslustofnanir eins og þeim gangi bara (Forseti hringir.) illt til í því að fara að lögum í landinu. Ég ætla a.m.k. ekki að leggja þar mitt lóð á vogarskálarnar. Þegar hér er verið að ræða um nauðsyn þess að auka ekki skautun í þjóðfélaginu þá getum (Forseti hringir.) við eiginlega ekki talað svona saman.