154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:40]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég er ekki alveg viss hvort við séum í réttu greininni hérna en ef við erum að ræða hér þá grein sem Dagbjört Hákonardóttir vísaði í, það sem Samfylkingin hefur kallað norsku leiðina, þá snýr það að því að halda inni séríslenskri reglu, þ.e. reglu sem ég held að sé stærsta atriðið í þessu máli að við séum að fella brott. Á sínum tíma þegar sú regla kom inn þá var hún einmitt að norskri fyrirmynd, því að við höfum auðvitað oft horft til Norðurlandanna. Norðmenn hafa nú tekið hana út og ég held að það fari betur á því að taka regluna alla út. En ef ég skil tillöguna rétt þá snýr það fyrst og fremst að tengslum þeirra sem ekki eru komin með vernd í öðru ríki og þar af leiðandi fellur fólk í þessum sjaldgæfu tilfellum undir Dyflinnarreglugerðina og gæti þar af leiðandi fengið málsmeðferð á umsóknum sínum ef þau falla undir þetta engu að síður. Ég tel því ekki þörf á því að vera með þessa breytingu inni sem Samfylkingin er að leggja hér til. (Forseti hringir.) Hún tekur á örfáum tilfellum og hún gerir það hvort sem er í frumvarpinu. (Gripið fram í.)