útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég kem hér aftur og ítreka þá kosti sem felast í því að samþykkja þessa leið sem við í Samfylkingunni höfum útfært og kannað. Þetta er að góðri erlendri fyrirmynd sem felur í sér að verið er að grípa þá sem hafa sérstök tengsl við Ísland og sem hafa ekki fengið vernd í öðru Evrópuríki. Hér eru hafðar uppi fullyrðingar um að þetta feli í sér örfá mál. Þetta eru hlutlæg viðmið sem við leggjum hérna til skoðunar þannig að þetta ætti ekki að auka of mikið á málabunkann. Þetta eru einstaklingar sem geta sýnt fram á þessi tengsl með sérstökum hætti. Reglugerðin um útlendinga getur útfært þessi viðmið. Ég legg áherslu á að ef þetta eru svona fá mál, og hér er vísað í það að þjóðaréttur bindi hvort eð er hendur okkar til að fylgja þessum reglum, þá verðum við að útfæra þau í landslögum. Við verðum að gera það og verðum þá að árétta skýran vilja löggjafans til þess að gera nákvæmlega það.
Um 2. mgr. 36. gr. vil ég segja að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lagðist ekki gegn afnámi hennar, (Forseti hringir.) eins og hún stendur nú í íslenskum lögum og er til trafala, í umsögn sinni til allsherjar- og menntamálanefndar við meðferð þessa máls. (Forseti hringir.) Ég legg áherslu á að þessi ákvörðun er ekki tekin af neinni léttúð. Það er gert að yfirveguðu máli.