útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir að koma inn á einmitt þetta, þ.e. að afnema séríslenskar reglur eins og 2. mgr. 36. gr. sannarlega er. Flóttamannastofnun leggst ekki gegn því, því að þá erum við bara að samræma kerfin til að lögin séu eins sem víðast. Þannig að ég legg bara áherslu á það að við afnemum að fullu þessa séríslensku reglu. Tillaga Samfylkingarinnar gengur út á að gera það af hálfu. (Gripið fram í.) Ég sé enga ástæðu til þess. Afnemum regluna, höfum kerfið sambærilegt því sem gerist í öðrum Evrópuríkjum. En við erum að sjálfsögðu engu að síður skuldbundin (Gripið fram í.) Dyflinnarsamkomulaginu, (Gripið fram í.) svo það sé líka tekið fram. Við erum ekki að frávísa þeim (Gripið fram í.) sem t.d. eru með umsókn um málsmeðferð í Grikklandi, þannig að Dyflinnarsamkomulagið heldur eftir sem áður. En það er full ástæða til að halda sig við það að afnema séríslenskar reglur.