154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:48]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Það er ekki að ástæðulausu að ég kem hér upp til að ræða fundarstjórn forseta. Við erum að greiða atkvæði um breytingartillögu frá hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur og þá kemur hv. formaður nefndarinnar og er í samtali um efnisatriði er varða aðra breytingartillögu í frumvarpinu. Ræðum það sem er til atkvæða þegar fólk fer í atkvæðaskýringu. Við erum ekki hér í endalausu efnislegu samtali um aðra hluti sem þingmenn hafa haft allan gærdaginn til að taka til máls um. Þetta snýst um það að hlutirnir fari fram eftir þeim reglum sem við höfum sett okkur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)