útlendingar.
Herra forseti. Ég tel líkt og Rauði krossinn og fleiri umsagnaraðilar að brottfall 2. mgr. 36. gr. feli í sér umfangsmikla réttindaskerðingu. Við mat á því hvort umsækjandi hafi sérstök tengsl við landið eða aðrar sérstakar ástæður sem mæla með vernd, er haft til hliðsjónar hvort umsækjandi er í viðkvæmri stöðu, svo sem vegna heilsufars eða þungunar, eða gæti átt erfitt uppdráttar í viðtökulandi vegna mismununar, kynhneigðar, kynþáttar eða kyns. Um mikilvægt mannúðarákvæði er að ræða sem er ætlað að tryggja að fólkið í viðkvæmustu stöðunni sé ekki sent aftur í ómannúðlegar aðstæður. Ákvæðið er öryggisventill sem getur skipt sköpum þegar um er að ræða fylgdarlaus börn, fatlað fólk og aðra viðkvæma einstaklinga. Ég fæ ekki séð að þessi breyting auki skilvirkni eða að trygging sé fyrir því að önnur ákvæði grípi þessi tilvik. — Ég segi því nei.