154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:51]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. 5. gr., eða brottfall 2. mgr. 36. gr. laganna, felur í sér það að fella brott þessa furðulegu reglu, furðulegu sérreglu um það að einstaklingur sem er búinn að fá vernd í öðru ríki geti komið hingað aftur, komið hingað til lands og fengið aftur vernd. Af hverju ætti að veita aftur vernd? Það þarf ekki. Einstaklingur sem er búinn að fá vernd í öðru ríki getur fengið dvalarleyfi á Íslandi. En að vera íþyngja umsjónarkerfi til alþjóðlegrar verndar með því að vera með þetta tvöfalda kerfi er alveg galið. Mér finnst satt að segja bara áhugavert að stúdera hvernig þetta gat komið í lög. Það er alveg með hreinum ólíkindum. Og þeir sem hafa áhuga á hinni svokölluðu norsku leið hvað þetta varðar þá er það bara er Dyflinnarreglugerðin. Hún tekur á öllum öðrum þáttum. Hún tekur á b-, c- og d-liðunum sem voru í breytingartillögunni hér áðan. Þannig að ég skora á alla sem fylgja norsku leiðinni að samþykkja brottfall þessarar greinar. (Forseti hringir.) Það væri eðli málsins samkvæmt rétta niðurstaðan.