útlendingar.
Forseti. Mig langar að rifja hér upp atkvæðaskýringu frá því í febrúar í fyrra, með leyfi forseta:
„Þetta er ákvæði sem VG hefur staðið vörð um enda er mikilvægt að geta alltaf litið til einstaklingsbundinna aðstæðna og að enginn hópur sé gjörsamlega útilokaður frá því að geta fengið málsmeðferð.“
Þessum orðum hv. þm. Jódísar Skúladóttur er ég svo hjartanlega sammála að ég segi nei við þessari tillögu og furða mig á því að hv. þm. Jódís Skúladóttir, eins og gervallur þingflokkur Vinstri grænna, hefur snúið af braut mannúðar og styður þetta hræðilega ákvæði.