154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:53]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Hér er ítrekað sagt að um sé að ræða einhverja sérreglu í íslenskum lögum sem þurfi að afnema. Það er auðvitað ótrúlega þreytandi að ef fólk segir hlutina nógu oft þá fara aðrir að trúa því. En það er bara ekki þannig að um sé að ræða einhverja sérstaka sérreglu. Það er þannig í öllum ríkjum Evrópu að einstaklingsbundnar aðstæður fólks eru teknar til skoðunar og stundum eru umsóknir teknar til efnismeðferðar jafnvel þó að fólk hafi fengið vernd í öðru ríki á grundvelli grundvallarreglna þjóðaréttar um að það eigi ekki senda fólk þangað sem líf þess eða frelsi er í hættu. Það hefur aldrei verið gert á Íslandi í þessum málum, aldrei, hvorki fyrir né eftir setningu 2. mgr. Í ofanálag þá segir meiri hlutinn og stuðningsmenn þessa ákvæðis, þar á meðal hv. þingmenn Vinstri grænna sem voru andvíg þessari breytingu áður, að 3. mgr. 36. gr. muni bjarga þessu fólki, muni grípa þetta mat. Það er náttúrlega á þeim forsendum sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gerir ekki athugasemdir við þessa breytingu (Forseti hringir.) vegna þess að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna treystir því að við fylgjum þeirri reglu þjóðaréttar, sem við höfum aldrei gert í þessum málum. Það er á þeim forsendum sem það (Forseti hringir.) er gert. Það er hins vegar ekki þannig. Það er ekki um neina sérreglu að ræða. Með því að afnema þetta (Forseti hringir.) þá erum við að lenda — ég ætla að taka það fram að meiri hlutinn lendir í mótsögn með því að segja að 3. mgr. muni grípa fólk. Hver er munurinn? Hver er þá skilvirknin? (Forseti hringir.) Skilvirknin felst í því að mál fólks sem hefur fengið vernd í ríkjum verða ekki skoðuð. Fólki verður snúið við á þröskuldinum. Það er markmiðið. (Forseti hringir.) Það er skilvirknin sem er verið að reyna að ná fram og það er ekki það sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna er sátt við.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími er aðeins ein mínúta þegar þingmenn gera grein fyrir atkvæði sínu.)