útlendingar.
Forseti. Ég ætlaði bara að koma upp og segja svipað og hefur komið hér fram. Mér finnst það mikilvægt út af því að hér er verið að tala um að taka í burtu 2. mgr. 36. gr. laga og inni í nefndinni var alltaf sú umræða að þetta ætti ekki að skipta neinu máli af því að það væri þarna 3. mgr. sem ætti að grípa fólk. Það var skilningur margra út frá umsögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna að það væru ekki gerðar neinar sérstakar athugasemdir við þetta einmitt út af því að þarna væri þessi almenna „non-refoulement“ regla sem á að grípa fólk. En vandinn er að það hefur aldrei verið notað hér á landi og ekki einu sinni áður en 2. mgr. var sett inn. Ef við förum langt aftur í tímann þá hefur því aldrei verið beitt þannig að það er ekkert sem vísar til þess, það er ekkert sem segir til um það að við séum að fara að beita því núna allt í einu þegar við tökum 2. mgr. í burtu. Það er ekkert sem bendir til þess að við séum að fara að grípa fólkið. Ég er algerlega fullviss um það að ef Flóttamannastofnunin hefði gert sér grein fyrir því (Forseti hringir.) hefði umsögnin litið allt öðruvísi út. Það er því mjög alvarlegt að það sé verið að taka þessa málsgrein út. Það er mjög alvarlegt.