154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:57]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Enn og aftur: Hér er um mikilvægustu grein frumvarpsins að ræða. Það er ekkert annað norrænt ríki með sambærilegt ákvæði því sem hér um ræðir. Stjórnvöldum er skylt að kanna aðstæður í því landi sem viðkomandi yrði vísað til og þar af leiðandi grípur útlendingalöggjöfin eins og hún er í dag og eins og hún verður eftir breytingar það fólk. Eðlilega hefur ekki reynt á það ákvæði á meðan við höfum haft þessa 2. mgr. 36. gr. því að hún grípur fleiri og það er þess vegna sem hátt í 200–300 manns hafa komið á ári hverju, fólk sem þegar er með vernd í öðru ríki hefur komið til Íslands og óskað eftir vernd. Þetta eru tölur sem þekkjast ekki á hinum Norðurlöndunum og meira að segja í fæstum Evrópuríkjum þekkist slíkt. En það er alveg á hreinu að Ísland virðir sínar alþjóðlegu skuldbindingar og fólk er ekki sent aftur þangað þar sem líf eða frelsi þess er í hættu og undir þetta tók Flóttamannastofnun í umsögn sinni og samtali við nefndina.