154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:58]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að greiða atkvæði með þessu ákvæði í dag en ég tel samt rétt að segja að við teljum að 2. mgr. 36. gr. hafi því miður ekki náð að þjóna tilgangi sínum eins og hún lítur út í dag. Þetta er gríðarlega matskennt ákvæði. Þetta er ákvæði sem felur í sér mikið nálarauga, þ.e. hér sækir fjöldi fólks í að teljast í flokki þeirra sem hafa sérstakar ástæður eða tengsl, sem hafa ýmist þegar fengið vernd í öðrum ríkjum eða bíða eftir niðurstöðu umsóknar þar. Það er því miður ekki mikil réttarbót að þessu ákvæði, því miður. Það er mögulega kannski ekki ætlun löggjafans en framkvæmdin talar sínu máli. Við verðum að auka skilvirkni. Við verðum að auka fyrirsjáanleika. Þess vegna lögðum við í Samfylkingunni til ákvæði sem væri nákvæmlega til þess fallið að búa til hlutlæg viðmið í þessu sem hægt væri að fara eftir, fylgja því eftir í reglugerð. Það er skilvirkni. Hún skiptir máli. Mannúð skiptir máli. Erlendar fyrirmyndir skipta máli. En skilvirkni — við verðum að styðja umbætur líka þegar það þarf og það er hreinlega skylda okkar að gera það. Það er hreinlega skylda okkar að gera það.