154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:00]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Við teljum að það að áskilja tveggja ára biðtíma hjá þeim sem eru handhafar viðbótarverndar til þess að óska eftir fjölskyldusameiningu falli á prófinu um skilvirkni, mannúð og erlendar fyrirmyndir. Um erlendar fyrirmyndir er það að segja aðeins fimm af 36 ríkjum Evrópu hafa áskilinn biðtíma. Þetta er ekki mannúðlegt og svo við tökum nú bara hausinn og hugsum með honum þá liggur það beinast við að þetta geri bara fjölskyldusameiningar erfiðari þegar þær eiga sér síðan stað. Ég vil leggja áherslu á að þetta er líka til þess fallið að tefja inngildingu verulega. Hins vegar erum við að sjálfsögðu alltaf til viðræðu um það að hér gildi einhver skilyrði, svo sem framfærsla. En ég tel þetta ákvæði eins og það lítur út ekki vera til bóta.