útlendingar.
Virðulegi forseti. Breytingartillaga Flokks fólksins gerir kröfu um það að eftir tvö ár þurfi fjölskyldumeðlimur að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Hafa verið virkur þátttakandi á vinnumarkaði í átta mánuði, hafa til umráða viðeigandi húsnæði fyrir aðstandendur og uppfylla skilyrði um íslenskukunnáttu. Mér finnst alveg grundvallaratriði að við, að íslenska ríkið, gerum þá kröfu til fólks sem hingað kemur til lands að það verði virkt á atvinnumarkaði, komi sér upp viðeigandi húsnæði og hafi lágmarkskunnáttu í íslensku. Ég veit að eftir tvö ár kunna menn ekki mikið í íslensku, ekki nema þú sért algjört séní í tungumálum, en það breytir því ekki að við verðum að gera kröfur um að það verði einhvers konar inngilding og að einstaklingar verði virkir.