útlendingar.
Virðulegur forseti. Þessi grein í frumvarpinu er um að heimila fjölskyldusameiningu eftir tvö ár án nokkurra krafna, án nokkurra skilyrða. Þetta er ólíkt því sem þekkist annars staðar á Norðurlöndunum. Þetta sýnir það misræmi sem er í þessu frumvarpi og hvernig það markmið að samræma löggjöf við Norðurlöndin er ekki að nást. Við erum ekki einu sinni með skilyrði varðandi fjölskyldusameiningu eftir tvö ár eins og Flokkur fólksins lagði til hér í breytingartillögu sem kom til atkvæðagreiðslu hér rétt áðan. Það eru engin skilyrði hérna. Það er sannarlega miður og sýnir það að þetta frumvarp er ekki í samræmi við hin Norðurlöndin, sem hefði verið gríðarlega mikilvægt. Ég ítreka að það er grundvallaratriði að við gerum kröfur til fólks um að taka þátt í inngildingu, að það leggi það á sig að læra tungumálið, sé í virkri atvinnuþátttöku og komi sér upp viðeigandi húsnæði. Það erum við ekki að gera hér. (BHar: Þetta er breytingartillagan okkar.)— Nei, þetta er ekki breytingartillagan … (Gripið fram í: Þetta er víst breytingartillagan …)