154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:07]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Herra forseti. Þetta ákvæði er sennilega skýrasta sönnunin á því, staðfestingin á því að þetta frumvarp hefur ekkert með skilvirkni, inngildingu eða sparnað að gera heldur snýst þetta um að senda fólki skilaboð um að það sé ekki velkomið, sem er auðvitað bara mjög skaðlegt. Þetta er auðvitað fullkomlega tilgangslaust að öðru leyti og það hafa ekki verið færð nein rök fyrir því að fara þessa leið önnur en þau að svona sé þetta gert í Danmörku, og það hefur bara reynst mjög illa. Hvers vegna erum við að apa það upp eftir þeim? Ég veit það ekki, til þess að vera vond við útlendinga svo þeir fari kannski eitthvað annað.