154. löggjafarþing — 114. fundur, 17. maí 2024.
útlendingar.
722. mál
Virðulegi forseti. Ég vil bara biðja þingheim innilegrar afsökunar á því að hafa ruglast í atkvæðaskýringum mínum. Hér er breytingartillaga sem við hefðum viljað sjá sem meginreglu og það eftir tvö ár. Breytingartillagan okkar hérna rétt áðan snerist nákvæmlega um það, nákvæmlega sama ákvæðið, nema við hefðum viljað hafa þetta eftir tvö ár og sem meginreglu. — Ég segi já.