154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:10]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Þessi grein við frumvarpið hefur verið umdeild, enda lá allsherjar- og menntamálanefnd vel yfir þessari grein. Það er hægt að segja að hún eigi sér einhver fordæmi í Danmörku eins og hún kemur frá ráðuneytinu og vegna þess að fólk vísar hér í alþjóðasáttmála, barnasáttmálann og mannréttindasáttmála, þá hefur slíkt mál farið fyrir Mannréttindadómstólinn og sú leið sem Danir eru með í dag, sem er tveggja ára biðtími plús inngildingarkröfur, stenst þar af leiðandi þá sáttmála. Sú leið sem var lögð til í frumvarpinu upphaflega var tvö ár. Hin Norðurlöndin hafa ekki sett neina tímafresti en þau eru með ákvæði sem gera það að verkum að fólk getur ekki sóst eftir fjölskyldusameiningu strax. Það þarf að uppfylla einhver skilyrði. Sú breytingartillaga sem við samþykktum hér áðan frá meiri hlutanum sneri einmitt að þessum hvata, að fólk sem er hér með atvinnu og framfærslu hafi betri tækifæri til að taka vel á móti fjölskyldunni sinni. (Forseti hringir.) Það kom skýrt fram í meðförum nefndarinnar hversu erfitt það getur verið þegar fólk hefur ekki fengið nein tengsl (Forseti hringir.) við landið og tekur strax á móti fjölskyldunni sinni versus það þegar fólk hefur haft tækifæri til að búa hér í einhvern tíma, (Forseti hringir.) læra aðeins inn á menninguna og tungumálið og koma sér almennilega fyrir áður en það tekur á móti fjölskyldunni sinni til að geta framfleytt henni til lengri tíma. (Gripið fram í: Hvar er einstaklingsfrelsið?)

(Forseti (BÁ): Forseti verður enn að minna á ræðutímann.)