154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:15]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Varðandi þessa 6. gr. þá erum við hér að leyfa fjölskyldusameiningu eftir tvö ár án skilyrða, og ég vísa til ræðu minnar hér áðan, en við erum ein Norðurlandanna sem gerir engar framfærslu- eða inngildingarkröfur við útgáfu þessara leyfa. Og hvað eru Norðurlöndin að reyna að gera þarna? Jú, þau eru að reyna verja velferðarkerfin sín. Þau reyna að knýja það fram að fólkið sem vill fjölskyldusameiningar verði virkir þátttakendur í atvinnulífinu, fái sér viðunandi húsnæði og taki þátt inngildingu með því læra tungumálið. Það er verið að reyna að fá það af sósíalnum og yfir í að verða virkir þátttakendur í samfélaginu. Við eigum að gera sömu kröfur og við það miðaðist breytingartillaga Flokks fólksins.