útlendingar.
Virðulegi forseti. Nú erum við komin að kjarna málsins: Þessi tillaga kolfellur á prófinu um aukna skilvirkni. Með því að gera þessum hópi fólks það varla kleift að óska eftir fjölskyldusameiningu má búast við því að hjá kærunefnd útlendingamála hrannist upp nýir bunkar, hjá Útlendingastofnun, vegna fólks sem vill ekki fá þá vernd sem því er úthlutað heldur vill fá alþjóðlega vernd vegna þess að þá getur það sameinast fjölskyldunni sinni strax. Ég legg áherslu á það að við erum að reyna að búa til umhverfi þar sem á að tryggja málshraða. Kærunefnd útlendingamála kom líka inn á það almennt að setja frekari skilyrði og þrengja frekar að réttindum viðbótarverndarhafa — og mannúðarleyfishafa nota bene — inn í þennan málaflokk og vil ég að við greiðum atkvæði með það að leiðarljósi.