154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:22]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Frú forseti. Við erum enn að tala um bæði almenna skerðingu á réttindum fólks til að sameinast fjölskyldu sinni, sem er svolítið áhugavert í ljósi þess að þingmenn meiri hlutans hafa t.d. talað fyrir auknum löglegum leiðum fyrir fólk til að koma og fá dvalarleyfi hér á landi, við þurfum á fólki að halda. Þarna verið að loka löglegum leiðum. Það vekur líka athygli að heimildir til fjölskyldusameiningar fyrir annars konar dvalarleyfishafa voru rýmkaðar hérna í fyrra. Fjölskyldusameiningar flóttafólks eru 5% fjölskyldusameininga sem hér eiga sér stað. Er verið að reyna að stemma stigu við fjöldanum? Hvað er verið að reyna að gera? Hvaða tilgangi þjónar þetta? Ég ætla að taka undir með hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur og ítreka það sem hún benti hérna á sem sýnir hversu óúthugsað þetta er. Það er verið að mismuna mismunandi dvalarleyfishöfum á þann hátt að það mun eingöngu verða til þess að einstaklingar fara að verða uppteknir af því hvort þeir fái stöðu flóttamanns eða viðbótarvernd. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (Forseti hringir.) hefur lagt áherslu á það að einstaklingar með viðbótarvernd njóti ekki lakari réttinda en fólk með stöðu flóttamanns, m.a. af þessari ástæðu. (Forseti hringir.) Viðbótarverndin er fyrir fólk sem er að flýja almennt stríðsástand. Af hverju eigum við að koma verr fram við þau en þau sem eru að flýja persónulegar ofsóknir? (Forseti hringir.) Hver er tilgangurinn með þessu ákvæði, forseti? Hver er tilgangurinn með þessu?