útlendingar.
Virðulegi forseti. Enn og aftur verið að finna hóp þar sem hægt er að halda börnum frá foreldrum sínum. Af hverju á að gera það frekar við þennan hóp en annan? Jú, allt í nafni þess að hér séu ekki einhverjir seglar eða eitthvað annað sem dregur fólk hingað. Ég ætla rétt að vona að það séu ávallt seglar á milli barna og foreldra þeirra. Ég ætla rétt að vona að við leyfum börnum og foreldrum að sameinast. Það er greinilegt að þessi ríkisstjórn, þeim er andskotans sama, afsakið orðbragðið, þegar kemur að því hvort börn og foreldrar fái að vera saman svo lengi sem það eru útlendingar. En ég ætla rétt að vona að þjóðin sýni að við stöndum með börnum.