154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:26]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Breytingartillaga Flokks fólksins hér varðar styttingu dvalarleyfa í samræmi við Danmörku. Í a-lið er óskað eftir styttingu dvalarleyfa vegna alþjóðlegrar verndar, ríkisfangsleysis, kvótaflóttafólks og fjölskyldusameiningar vegna ofangreinds. Í b-lið er það vegna leyfis vegna viðbótarverndar. Ég tel mjög mikilvægt að við samræmum löggjöf okkar hinum Norðurlöndunum og þá sérstaklega Danmörku og Noregi. Það erum við ekki að gera ef við fellum þessa tillögu.