154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:28]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Frú forseti. Þetta er enn ein breytingin sem kemur frá Danmörku og það vill svo til að það er reynsla af þeirri breytingu sem var gerð þar þegar kom að styttingu dvalarleyfa þeirra sem fá viðbótarvernd. Það hefur sýnt sig að þetta dregur úr andlegri heilsu fólks, hefur neikvæð áhrif á andlega heilsu sérstaklega barna og ungmenna, og þetta eru gögn sem við fengum til okkar í hv. allsherjar- og menntamálanefnd við umfjöllun um málið. Við fengum þessi gögn frá Flóttamannastofnuninni og þau sýna svart á hvítu hverjar afleiðingarnar eru af því að stytta dvalarleyfin á þennan hátt; þetta eykur á óöryggi, þetta eykur á kvíða og þetta eykur á tilfinninguna um að fólk sé ekki velkomið í landinu. Og af hverju á fólk einhvern veginn að fara að vinna að inngildingu þegar það lifir í svona mikilli óvissu? Þetta vinnur gegn markmiðum um inngildingu en við ætlum samt að gera það. Af hverju? Út af því að Danmörk gerði þetta? Er það þannig sem við ákveðum hvernig lög við setjum hérna, samræmum bara til þess að samræma? (Forseti hringir.) Erum við ekkert að skoða hverjar afleiðingarnar eru? Látum við það ekki hafa nein áhrif á ákvarðanir sem við tökum? (Forseti hringir.) Við ætlum bara að vinna gegn inngildingu. Frábært.