útlendingar.
Virðulegur forseti. Í þessari breytingartillögu er Flokkur fólksins að gera tilraun til þess að afnema eina af þessum furðulegu íslensku sérreglum. Hver er hún? Jú, það er réttur til mannúðarleyfis vegna tafa við afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd, vegna þess að ef tafir fara fram yfir 18 mánuði þá er umsóknin ekki afgreidd heldur er veitt leyfi til mannúðar, mannúðarleyfi. Það er grundvallaratriði að afgreiða umsókn um alþjóðlega vernd efnislega, það er grundvallaratriði, og það er ekkert annað ríki á Norðurlöndum sem ég veit um sem hefur þessar reglur.