154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:32]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Samkvæmt núgildandi lögum er dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða veitt til eins árs og það er hægt að framlengja það og þá má það vera til tveggja ára í viðbót. Þetta fyrirkomulag hefur reynst fólki mjög erfitt, mjög þungbært. Fólk sem er með dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hefur á tilfinningunni að það geri ekkert annað en að sækja um dvalarleyfi aftur og aftur og er í stöðugum ótta um að það verði ekki endurnýjað þar sem það tekur marga mánuði fyrir Útlendingastofnun að afgreiða þessar umsóknir. Þannig að ef það er bara eitt ár mun fólk ekki vera að gera neitt annað, það mun bara vera í kvíða og óvissu þangað til hvað? Hver tilgangurinn með þessu? Það er verið að auka álag á Útlendingastofnun með því að láta hana afgreiða umsóknir aftur og aftur, láta fólk sækja um endurnýjun oftar. Þetta mun kosta meiri pening fyrir ríkissjóð. Þetta hefur slæm áhrif á fólk, hamlar inngildingu verulega. Það er enginn að fara að standa sig við að læra íslensku þegar hann veit ekki hvort hann verður hér eftir ár eða ekki. Þetta er algerlega galin breyting. Þetta er galin átt sem við erum að fara í og hafa engin rök verið færð fyrir því önnur en þau að herma eftir Danmörku þar sem þetta hefur reynst mjög illa og hefur haft slæmar afleiðingar. Hvað erum við að pæla?