útlendingar.
Frú forseti. Það er nauðsynlegt að draga línu í sandinn í þessum málaflokki rétt eins og öðrum. Aftur legg ég höfuðáherslu á skilvirknisjónarmiðin í þessu en auðvitað líka alltaf mannúðina. Að fella niður bráðabirgðaatvinnuleyfi einstaklings sem hefur fengið neikvæða niðurstöðu Útlendingastofnunar er ekki kannski neitt sérstaklega æskilegt í ljósi þess að við eigum hér lögbundinn rétt til að kæra niðurstöðuna. Eitt er að láta tímamarkið eiga við þegar kærunefnd útlendingamála hefur komist að niðurstöðu sinni. Það fer nú betur á því í ljósi alþjóðlegra skuldbindinga okkar auk þess sem ég sé fyrir mér verulega aukningu á kostnaði ríkissjóðs við það að setja þetta fólk í það að þiggja hér framfærslu af hálfu hins opinbera í staðinn fyrir að það geti unnið fyrir sér. Þess vegna leggjum við til þessa millileið og ég vona að hún fái hljómgrunn hér í dag.