154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:35]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Á meðan fólk bíður niðurstöðu Útlendingastofnunar þá getur fólk fengið hér bráðabirgðadvalarleyfi og atvinnuleyfi. Það eru ekki margir sem nýta sér það úrræði því að á sama tíma fellur niður framfærsla frá ríkinu, en þó eru það einhverjir. Með þeirri breytingu sem fyrirhuguð er í frumvarpinu erum við að segja að við synjun frá Útlendingastofnun þá falli þetta atvinnuleyfi niður. En með breytingartillögu frá Samfylkingunni þá ætti fólk að geta haldið áfram að vinna þrátt fyrir að hafa fengið synjun frá Útlendingastofnun ef og á meðan það bíður niðurstöðu kærunefndar. Við teljum það einfaldlega öfugan hvata í þessu efni og draga úr sjálfviljugri heimför. Ef fólk hefur fengið synjun frá Útlendingastofnun, sem er fyrsta stjórnsýslustigið, þá hefur það ekki lengur dvalarleyfi. En það er vissulega rétt að fólk getur kært þá niðurstöðu til kærunefndar. Sumir gera það en alls ekki allir.