útlendingar.
Forseti. Þetta er svo mikil rökleysa. Hver er hagræðingin í því að leyfa fólki ekki að vinna? Hver er hagræðingin í því? Þetta er bara aukakostnaður. Hvernig dregur þetta úr hvata fólks til sjálfviljugrar heimfarar? Það er bara vandamálið í hnotskurn við allt þetta frumvarp að það vantar rökstuðninginn í allt. Þetta er bara einhver tilfinning fólks. Þetta er bara svona: Hvernig getum við á sem skilvirkastan máta gefið út þau skýru skilaboð að við viljum bara alls ekki hafa fólk hérna? Við viljum bara fólk fari, sleppi því að koma hingað og höldum því í burtu. Já, við skulum finna einhverjar leiðir til að vera bara eins ógeðsleg og við getum til þess að fólk komi ekki hingað, þau viti það og það sé alveg á hreinu að þau eru ekki velkomin hingað. Þetta er ein af þeim breytingum. Og það er svo skammsýnt að sjá ekki hvað þetta verður kostnaðarsamt fyrir samfélagið til framtíðar að koma svona fram við fólk. Það er ótrúlega skammsýnt. Þetta meikar engan sens. Auðvitað á fólk að geta unnið hérna, það þarf stundum að bíða í marga mánuði eftir niðurstöðu kærunefndar. Af hverju á fólk að vera upp á það komið að ríkið greiði fyrir það frekar en að það vinni sjálft? Bara óskiljanlegt.