útlendingar.
Forseti. Það er svo mikill kostnaður við þetta kerfi vegna þess að ríkisstjórnin vill ekki leyfa fólki sem sækir um alþjóðlega vernd að vinna fyrir sér, búa þar sem það velur sjálft að búa. Mikill kostnaður við að halda fólki að öllu leyti á framfæri ríkisins, í búsetuúrræðum á vegum ríkisins eða að eyða hundruðum milljóna í öryggisgæslu vegna þess að ríkisstjórnin treystir ekki fólki sem er að flýja stríð. Þennan kostnað er mjög auðvelt að losna við að mestu leyti vegna þess að fólk sem sækir um alþjóðlega vernd á Íslandi er bara eins og allt annað fólk. Það er sjálfbjarga. Það getur unnið fyrir sér. Það getur lagt til samfélagsins ef því er ekki haldið í lokuðum virknilausum úrræðum stjórnvalda. Þar er kostnaðurinn. Hér er lagt til að viðhalda því, að viðhalda þessari eymd og þessu ástandi, sennilega til að pína fólk úr landi vegna þess að allslaust (Forseti hringir.) leitar fólk annað. Þetta er það sem kallað er hvati af fulltrúum meiri hlutans. Það er hvati til að fólk hverfi úr landi, (Forseti hringir.) að það fái ekki að vinna fyrir sér og lifa mannsæmandi lífi.