útlendingar.
Forseti. Þetta er bara svo heimskulegt. Þarna er í fyrsta lagi verið að afnema heimild sem er mjög lítið nýtt, eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir benti á. Það er hins vegar ekki vegna þess að fáir nýti sér hana heldur vegna þess að það eru bara svo ótrúlega fáir sem geta nýtt sér hana, sem uppfylla þau ströngu skilyrði sem eru fyrir því að fá að vinna á meðan á málsmeðferð stendur. Það eru mjög erfið skilyrði. Málsmeðferð tekur þrjá mánuði, það er mjög erfitt fyrir fólk að sannfæra vinnuveitandann um að bíða í þrjá mánuði eftir að þau fái kannski kennitölu sem gildir þangað til það er búið að vinna umsóknina þeirra. Þetta er bara eitthvað sem er ekki í boði fyrir einn eða neinn. En svo er þetta líka bara svo heimskulegt. Þau fáu sem komast inn í þetta, fá þetta atvinnuleyfi, fara út úr þjónustunni. Þegar fólk fær svona atvinnuleyfi þá fer það út úr þjónustunni. Þá missir það þjónustu á vegum stjórnvalda. Þarna er verið að henda þeim inn aftur. Var ekki akkúrat verið að segja að fólk væri að koma hingað til að hanga á þjónustunni? Hvaða rugl er þetta?