útlendingar.
Forseti. Ég geri mér ekki í fljótu bragði grein fyrir því nákvæmlega hver áhrif þessa ákvæðis verða önnur en þau að það sem stjórnvöld kalla, og ég ætla að leyfa mér að setja innan gæsalappa, „sjálfviljuga heimför“, slíkum umsóknum mun væntanlega fjölga. Að minni reynslu er þessi sjálfviljug heimför sjaldnast sjálfviljug þannig að ég hef efasemdir um þetta ákvæði og hef þess vegna verið gul á því. En ég vil líka vekja athygli meiri hlutans á því að þetta mun auðvitað auka álag á Útlendingastofnun eins og flest annað í þessu frumvarpi.