154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[14:51]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti, Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem hefur þann tilgang að heimila Jöfnunarsjóði sveitarfélaga að greiða framlög til sveitarfélaga sem bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir.

Til að greiða fyrir langtímakjarasamningum á vinnumarkaði gáfu ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga út sameiginlega yfirlýsingu þann 7. mars 2024. Í yfirlýsingunni kom fram að stjórnvöld myndu grípa til tiltekinna aðgerða til að styðja við sameiginleg markmið stjórnvalda og samningsaðila um að leggja grundvöll að bættum lífskjörum og kaupmætti launafólks og stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta. Ein aðgerðin snýr að því að útfæra leið til þess að skólamáltíðir grunnskólabarna verði gjaldfrjálsar á árunum 2024–2027 en með því er m.a. stutt við markmið stjórnvalda um að draga úr fátækt meðal barna.

Virðulegi forseti. Ég ætla að fjalla aðeins um þetta mál almennt áður en að ég fer nánar yfir efnisatriði frumvarpsins. Ég tel að þetta sé tímamótaskref. Það mun koma til með að gera grunnskólana opnari, þar sem skólamáltíðin er hluti af skólastarfinu og þar sem börn eru ekki dregin í dilka eftir efnahagslegri stöðu. Það er raunar svo að Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur lagt áherslu á þessi mál í tæp tuttugu ár, m.a. sú sem hér stendur og þá fyrst í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna 2006 á og einnig síðar á vettvangi Reykjavíkurborgar og svo höfum við auðvitað haldið þessu máli til haga á vettvangi Alþingis.

Það er áhugavert að bera saman sögu þessa málaflokks hérna á Íslandi og í öðrum löndum, til að mynda á Norðurlöndunum, í Svíþjóð og Finnlandi. Ef við byrjum á því að skoða hvernig málum er fyrir komið hér er það svo að í grunnskólalögum frá 1995 voru ákvæði um að nemendur ættu kost á málsverði á skólatíma en svo var það ekki fyrr en árið 2000 sem það varð stefna Reykjavíkurborgar að bjóða upp á heitan málsverð í hádeginu og þeirri uppbyggingu lauk árið 2008. Með nýjum grunnskólalögum sem tóku gildi 1. júlí 2008 var hnykkt á þessu og bætt við gjaldtökuheimild fyrir sveitarfélög vegna skólamáltíða. Það er ekki langur tími þegar við berum okkur saman við Finnland sem hefur boðið upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir á landsvísu frá árinu 1948 og Svíþjóð innleiddi þær á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar.

Það er áhugavert að horfa til sögunnar þegar Finnland er annars vegar. Finnar byrjuðu á þessu eftir síðari heimsstyrjöld og í raun og veru strax meðan á heimsstyrjöldinni stóð. Til hvers var það gert? Það var til þess að tryggja það að fátæk börn myndu ekki lifa við hungurmörk á erfiðum tímum í sögunni. Upphafið var í Helsinki árið 1943 þar sem eldhús Helsinki sá hermönnum, þunguðum konum og börnum fyrir mat. Síðar og eftir því sem Finnlandi vegnaði betur voru gerð skilyrði um gæði og þess háttar. Í Finnlandi er breið samstaða um þetta mál enn þann dag í dag þótt aðstæður í samfélaginu séu breyttar.

Í Svíþjóð snerist bakgrunnurinn í innleiðingu gjaldfrjálsra skólamáltíða miklu frekar og fyrst og fremst um hugmyndina almennt um félagslegan jöfnuð og félagslegt réttlæti þar sem var lögð áhersla á það að öll börn, óháð stétt og stöðu, fengju sömu næringarríku máltíðirnar. Markmiðið þar var líka að auka kynjajafnrétti því það kemur kannski ekki á óvart að í Svíþjóð, rétt eins og á Íslandi, þá voru það einkum konur sem tóku ábyrgð á því að hafa heitan málsverð til reiðu heima eða smyrja nesti fyrir börnin. Með því að máltíðir væru í boði í skólum voru líka tækifæri kvenna á vinnumarkaði aukin.

Með þessu frumvarpi sem hér er til umfjöllunar erum við að stíga það skref að horfa frekar til Norðurlandanna, til Svíþjóðar, til Finnlands og líta á skólamáltíðir sem hluta af grunnskólanum sjálfum og þeirri heildarhugsun að börn eigi ekki að líða fyrir stéttaskiptingu eða efnahagslega mismunun. Þetta er mikil breyting. Þetta er samfélagsleg breyting og þetta er breyting til framfara, jöfnuðar og breyting til batnaðar.

Virðulegur forseti. Áhrifin á efnahag barnafjölskyldna eru ótvíræð. Miðað við gjaldskrá Reykjavíkurborgar eru áhrifin á ráðstöfunartekjur tæpar 120.000 kr. á ári. Það munar um það. Þetta skiptir miklu máli þegar við vitum að það eru einkum fólk með börn sem ekki hefur upplifað eins mikla kaupmáttaraukningu og aðrir hópar síðustu ár. Það munar um þetta. Með því að draga úr fátækt barna þá höfum við jákvæð áhrif á farsæld og framtíðarmöguleika þessara sömu barna. Samkvæmt innlendum rannsóknum á langtímaáhrifum fátæktar á Íslandi skiptir tími miklu máli. Í skýrslu um fátækt og áætlaðan samfélagslegan kostnað á fátækt sem unnin var á síðasta ári fyrir forsætisráðuneytið kemur margt áhugavert fram. Það er til að mynda vel þekkt staðreynd að fátækt í æsku getur haft langvarandi áhrif á velsæld viðkomandi einstaklings. Þetta sjáum við m.a. í því að þau sem voru undir lágtekjumörkum á aldrinum 14–16 ára voru líklegri til að vera undir lágtekjumörkum á aldrinum 34–46 ára. Þau voru líklegri til að vera einstæð foreldri, þau voru ólíklegri til að hafa lokið framhaldsskóla og háskóla.

Það er einfaldlega þannig, virðulegi forseti, að tækifærin eru ekki þau sömu fyrir fólk af efnalitlum heimilum og af efnameiri heimilum. Það er staðreynd. Hlutverk samfélagsins og stjórnvalda er ekki síst að jafna þennan aðstöðumun.

Í þessu samhengi er einnig áhugavert að nefna sænska langtímarannsókn sem kannaði áhrifin af gjaldfrjálsum skólamáltíðum á ævitekjur fólks. Þegar leiðrétt hafði verið fyrir ýmsum breytum varð niðurstaðan sú að ævitekjur þeirra sem höfðu í æsku aðgang að gjaldfrjálsum skólamáltíðum í grunnskóla voru 3% hærri að meðaltali en þeirra sem höfðu það ekki. Það var beinlínis þannig að þau sem voru við þær aðstæður að þurfa að greiða fyrir skólamáltíðir voru þá þegar með minna forskot og rýrari tækifæri til launa á sínum fullorðinsárum. Sé það enn frekar sundurgreint þá voru áhrifin hlutlaus á börnin sem koma úr ríkustu tekjutíundunum en 6% hjá þeim sem voru tekjulægri. Með öðrum orðum, það tapaði enginn á þessari breytingu en efnaminna fólk hafði umtalsverðan hag af gjaldfrjálsum skólamáltíðum. Því hljótum við öll að fagna.

Í umræðukafla þessarar rannsóknar sem hér er nefnd voru færð veigamikil rök fyrir því að heildarábatinn væri afar jákvæður fyrir sænskt samfélag og um þetta fyrirkomulag ríkir mikil ánægja og sátt í Svíþjóð og hefur verið svo um áratugaskeið. Það er sú leið sem við eigum að feta hér á Íslandi í þessum málaflokki.

Virðulegur forseti. Aftur að frumvarpinu sem hér er til umfjöllunar. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiðir, eins og hv. þingmönnum er kunnugt, ýmis framlög til sveitarfélaga á grundvelli laga um tekjustofna sveitarfélaga. Því þótti heppilegt að fara þá leið að beina framlögum í gegnum jöfnunarsjóð til að styðja við sveitarfélögin í því að bjóða gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Forsaga þess að ég sem innviðaráðherra stend hér og geri grein fyrir málinu er sú að mínu ráðuneyti var falið að útfæra þessa leið, sem var að hluta til niðurstaða kjarasamninga, í frumvarpi sem legði til við Alþingi að jöfnunarsjóður yrði það verkfæri sem notað yrði.

Í frumvarpinu er mælt fyrir um að á árunum 2024–2027 bætist árlegt framlag úr ríkissjóði við tekjur jöfnunarsjóðs en mælt er fyrir um tekjur jöfnunarsjóðs að öðru leyti í 8. gr. a laga um tekjustofna sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir að fjárhæðin verði ákveðin í fjárlögum en samkvæmt yfirlýsingu stjórnvalda frá því í mars 2024 er gert ráð fyrir að fjárhæðin fyrir heilt skólaár skuli nema 3.750 millj. kr.

Í ákvæðinu er mælt fyrir um hvernig framlag til einstakra sveitarfélaga er reiknað út. Útreikningur fer þannig fram að miðað er við að heildarframlag ríkissjóðs ár hvert skiptist hlutfallslega til sveitarfélaga eftir heildarnemendafjölda í grunnskólum í hverju sveitarfélagi 1. janúar skólaárið á undan. Framlagið greiðist svo mánaðarlega til sveitarfélaga frá 1. ágúst 2024 til loka árs 2027, að undanskildum júlímánuði eða í ellefu greiðslum ár hvert. Þessar reglur fela í sér að framlög jöfnunarsjóðs vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða taka breytingum í upphafi skólaárs miðað við heildarnemendafjölda í grunnskólum 1. janúar árið áður og framlagið tekur jafnframt breytingum í janúar ár hvert í samræmi við verðlagsuppfærslu fjárlaga.

Ákvæðið gerir ráð fyrir því að jöfnunarsjóður veiti eingöngu framlög til þeirra sveitarfélaga sem bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir og því má gera ráð fyrir að jöfnunarsjóður kalli eftir slíkum upplýsingum frá hverju og einu sveitarfélagi, enda sé þar um að ræða forsendu þess að greiðslur berist sveitarfélaginu úr jöfnunarsjóði. Ef sveitarfélag tekur ákvörðun um að bjóða ekki upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir rennur framlag jöfnunarsjóðs til viðkomandi sveitarfélags aftur til ríkisins. Þetta er í samræmi við markmið frumvarpsins en framlag ríkisins í jöfnunarsjóð er háð því að sveitarfélög bjóði upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir eins og áður er getið.

Að lokum er rétt að geta þess að frumvarpið kveður á um skipan starfshóps þar sem er einn fulltrúi míns ráðuneytis, innviðaráðuneytis, sem jafnframt er formaður, einum fulltrúa frá mennta- og barnamálaráðherra og tveimur fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þessum starfshópi er ætlað að leggja mat á nýtingu og áhrif framlagsins, m.a. er lagt upp með að meta skuli áhrif á markmið um að auka jöfnuð og draga úr fátækt barna. Það er gert ráð fyrir að skoðað verði sérstaklega eftir því sem framkvæmdinni vindur fram hvort allir árgangar nýti sér gjaldfrjálsar skólamáltíðir með sama hætti og hver sé ávinningur einstakra sveitarfélaga, landshluta o.s.frv. Þá er gert ráð fyrir að meta ekki síður reynslu og ánægju nemenda og foreldra. Gert er ráð fyrir að niðurstaða hópsins liggi fyrir eigi síðar en 30. júní 2026.

Þetta mál er ekki bara afar mikilvæg forsenda í þjóðhagslega mikilvægum kjarasamningum sem hafa það meginmarkmið að viðhalda efnahagslegum og félagslegum stöðugleika á Íslandi til næstu ára heldur er þetta réttlátt mál og mikilvægt mál. Með þessari sögulegu samstöðu sem náðist við kjarasamningsborðið, að ná árangri fyrir okkur öll, þá sköpum við jafnara og betra samfélag fyrir börnin okkar og þar með fyrir alla íbúa.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umræðu. Ég lýsi því hér yfir við lok minnar framsögu að mitt ráðuneyti er reiðubúið til að vera nefndinni innan handar með að vinna úr frumvarpinu því að hér er um að ræða mál sem eðli máls samkvæmt hefur sérstöðu hér í þinginu sökum tengsla við kjarasamninga og því mikilvægt að það fái greiða, málefnalega og uppbyggilega úrvinnslu hér í þinginu.