154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[15:06]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Nú í byrjun mars náðust tímamótasamningar í Karphúsinu þegar Samtök atvinnulífsins og langstærstur hluti aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands gerðu með sér kjarasamninga, langtímakjarasamninga. Sem kunnugt er gáfu ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga út sameiginlega yfirlýsingu til að styðja við þetta risastóra og jákvæða skref þess efnis að gripið yrði til aðgerða sem myndu stuðla að bættum lífskjörum og kaupmætti launafólks. Samningarnir voru langþráðir og þjóðhagslega mikilvægir, eins og hæstv. ráðherra kom inn á í sinni ræðu. Þeir byggðu á framsýni og ríkum vilja hlutaðeigandi til að skapa hér skilyrði í samfélaginu, m.a. til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Einn veigamikill þáttur í þessum aðgerðum er vandlega íhuguð útfærsla á því að gera skólamáltíðir grunnskólabarna í landinu öllu gjaldfrjálsar. Og hér ræðum við það í dag, virðulegi forseti; frumvarp um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga til að ná fram þessum mikilvægu atriði kjarasamninganna.

Með þessum breytingum á löggjöf gefum við öllum grunnskólabörnum landsins tækifæri á að sitja bókstaflega við sama borð þegar kemur að einni mikilvægustu grunnstoðinni, næringu. Sömuleiðis komumst við áfram með það markmið stjórnvalda að draga úr fátækt meðal barna. Það skiptir máli, miklu máli, ekki síður vegna þess að gjaldfrjálsar skólamáltíðir fyrir börn í grunnskólum eru skrifaðir inn í forsenduákvæði téðra kjarasamninga, enda geta þær skipt sköpum þegar kemur að ráðstöfunartekjum fjölskyldna, ekki síst einstæðra foreldra. Í þessu samhengi hefur til að mynda verið bent á að kostnaður foreldra við skólamáltíðir tveggja barna á grunnskólaaldri geti numið um 25.000 kr. Þessi veigamikli þáttur í kjarasamningum er því til aukningar ráðstöfunartekna fjölskyldna.

Virðulegi forseti. Ekkert barn á að upplifa skort. Öll börn eiga að fá nóg. Þannig á það að vera og erum við vonandi öll sammála um það sama hvar við stöndum í pólitík. Með því að gera skólamáltíðir gjaldfrjálsar geta öll börn, óháð fjárhagslegri eða félagslegri stöðu, uppruna eða búsetu, gengið að næringarríkum mat vísum á hverjum virkum degi. Það eitt og sér er mikilvægt skref í því að ná og viðhalda stöðugleika. En svo er aðgerðin, eins og áður segir, ein grunnforsenda þeirra tímamótasamninga sem náðust hér til næstu fjögurra ára og eru landinu öllu til heilla.

Það er vinsælt að miða okkur við löndin í kringum okkur og við skulum halda uppteknum hætti í því, virðulegi forseti. Svíar bjóða öllum nemendum 6–16 ára upp á heita máltíð á hverjum skóladegi og sömuleiðis flestum eldri nemendum 16–19 ára. Og í Finnlandi eiga ókeypis skólamáltíðir sér hátt í 80 ára sögu, eins og kom fram í framsöguræðu hæstv. ráðherra. Enn lengra er síðan Finnar gáfu þeim börnum sem koma frá efnaminni fjölskyldum mat án gjalds. Það var svo útvíkkað fyrir öll börn. Norðmenn eru ekki með þetta fyrirkomulag. Flest norsk börn koma með nesti í skólann og í Danmörku er það sama upp á teningnum. Þó að það hafi verið rætt í næstum 150 ár að koma á ókeypis máltíðum fyrir skólabörn hafa Danir ekki náð að koma því í verk enn þá. Og þó að margt megi læra af frændum okkar þar sem og í Noregi er þetta ekki eitt af því.

Það er því sérstakt fagnaðarefni að þetta stóra mál sem við í Vinstri grænum höfum barist lengi fyrir sé loks að verða að veruleika og að það hafi fengið þá viðurkenningu að vera liður í aðkomu stjórnvalda, þ.e. ríkis og sveitarfélaga, að þeim góðu samningum sem náðust milli atvinnulífs og launþega — réttmæta viðurkenningu, vegna þess að fríar skólamáltíðir fyrir öll grunnskólabörn eru réttlætismál, eins og hæstv. ráðherra kom inn á í sinni framsögu. Næsta skref er að tryggja leikskólabörnum og ungmennum í framhaldsskólum gjaldfrjálsar skólamáltíðir. En byrjum á þessu, virðulegi forseti.