tekjustofnar sveitarfélaga.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu í þessu mikilvæga og góða máli. Hér hefur auðvitað verið snert á mörgum þáttum sem ég ætla að fá að ítreka og jafnvel endurtaka. En það er öllum ljóst sem hér eru að gerðir voru kjarasamningar og það var mikill þrýstingur á að launaliðurinn í þeim kjarasamningum yrði hófstilltur og eðli málsins samkvæmt var kallað á stjórnvöld að koma með aðgerðir til að liðka fyrir gerð kjarasamninga og, ég hef leyft mér að segja til að gera fólki lífið eilítið auðveldara og léttara og kannski létta þeim byrðarnar sem þyngstar bera. Ég held að það séu, og við getum öll verið sammála um það, líklega barnafjölskyldur, barnmargar fjölskyldur sem eru að feta sín fyrstu skref í lífinu, ef svo má að orði komast, eru að koma sér þaki yfir höfuðið og eiga börn sem eru í leikskóla og tómstundum og þess háttar. Ég held að það sé mjög brýnt að koma til móts við þennan hóp með einhvers konar aðgerðum og m.a. þeirri aðgerð sem hér er lögð til með gjaldfrjálsum skólamáltíðum.
Ég hef sagt það áður hér í þessum stól að ég styð þetta mál og hef talað fyrir þessu sjálfur. Alveg frá því að ég hóf minn pólitíska feril þá hef ég boðað þetta og í því sveitarfélagi sem ég tók þátt í að stýra, Hafnarfirði, var þetta eitt af forgangsmálum og áherslumálum míns flokks þar, Framsóknar, að koma þessu inn með einhverjum hætti. Og það gerðum við svo sannarlega. Við náðum kannski ekki að stíga skrefið að fullu. En það sem okkur tókst að gera samt sem áður, sem hefur ekki verið gert áður, var að setja systkinaafslátt sem er nú vel þekktur, á ýmis gjöld sveitarfélaga, m.a. leikskólagjöld, innleiða systkinaafslátt á skólamáltíðir grunnskólabarna. Við byrjuðum á og tókum það skref að gera skólamáltíðir gjaldfrjálsar fyrir þriðja barn. Síðan var settur afsláttur á barn númer tvö. Ef við tökum sem dæmi fjölskyldu með þrjú börn á grunnskólaaldri, sem er ekkert mjög óalgengt nú um stundir, þá er þetta eitt og sér, leyfi ég mér að segja, launauppbót upp á 70.000–130.000 kr. á ári og það munar heldur betur um það. Þannig að ég held að hér sé verið að stíga mjög gott og jákvætt skref. Þessu til viðbótar, ef við tölum um eitthvað annað en að auka ráðstöfunartekjur, sem þetta mun vissulega að gera og mun skipta þennan hóp alveg gríðarlega miklu máli, þá er hér, eins og bæði hæstv. ráðherra nefndi í framsögu sinni og hv. þm. Orri Páll Jóhannsson sagði í ræðu, um réttlætismál að ræða, jafnréttismál, lýðheilsumál.
Svo ég nefni nú mitt sveitarfélag aftur þá gengum við skrefinu lengra og buðum öllum grunnskólabörnum upp á heitan hafragraut í upphafi dags. Ég held að starfsfólk grunnskóla hafi séð það bara á líðan nemenda að þetta hafði jákvæð áhrif á skólastarfið í heild og mun hafa það áfram. Ég trúi því, og ég held að það sé alveg hægt að vitna í einhver gögn þess efnis, að þetta muni stuðla að bættum námsárangri hér á landi og heilt yfir á þessu skólastigi. Þrátt fyrir það sem hér hefur komið fram varðandi stuðning við tekjulág heimili þá held ég að það skipti ekki síður máli fyrir þau börn sem koma af tekjuhærri heimilum vegna þess að við sjáum það oft að þau börn gleymast oft á tíðum þegar kemur að þessu. Ég hef heyrt það frá þeim sem starfa innan grunnskóla og í skólakerfinu að því miður sé staðan sú að það eru ákveðnir hópar sem koma ítrekað með sömu fæðuna dag eftir dag og viku eftir viku. Þannig að ég held að þetta muni skipta máli fyrir alla þá hópa sem hér eru, hvort sem þeir koma frá tekjulágum eða tekjuháum heimilum. Eins og fyrr segir er þetta jafnréttismál og lýðheilsumál, mjög jákvætt skref og mikilvægt að við séum að taka það hér og nú. Mér finnst engu máli skipta hvort þetta sé liður í kjarasamningum eða ekki. Þrátt fyrir að þetta eigi að gilda til loka árs 2027 þá leyfi ég mér að bæði trúa og vona að við séum að stíga hér skref sem muni verða til langrar framtíðar. Ég held að það sé íslensku samfélagi og skólakerfinu í heild til heilla.
Svo held ég að það sé líka önnur umræða sem þurfa að taka með Sambandi íslenskra sveitarfélaga og öðrum þeim sem það mál snertir, leikskólastigið í heild og hvernig við ætlum að horfa á það til framtíðar, að það sé lögbundin þjónusta sveitarfélaganna og hvernig kostnaðarþátttakan og skiptingin á milli ríkis og sveitarfélaga verður þegar að því kemur. En ég held að það sé rétt að ræða það síðar og undir öðru máli. En ég fagna þessu alveg gríðarlega og trúi því að þetta fái góða umræðu í þinginu og innan þingnefnda og við klárum málið svo sómi sé að.